Útboðsnúmer 22-117
Vetrar­þjón­usta 2023-2026, Vík – Steinar

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst febrúar 2023
    • 2Opnun tilboða mars 2023
    • 3Samningum lokið maí 2023

2 febrúar 2023Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Vík – Steinar.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 13.000 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 3. febrúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. mars 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.


7 mars 2023Opnun tilboða

Opnun tilboða 7. mars 2023. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Vík – Steinar.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 13.000 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Ármann Daði Gíslason, Ytri-Ásum
105.960.000
159,0
17.340.000
Snilldarverk ehf., Hella
88.620.000
133,0
0
Áætlaður verktakakostnaður
66.630.000
100,0
21.990.000

25 maí 2023Samningum lokið

Snilldarverk ehf.,Hella
kt. 5712972809