Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Vík – Kirkjubæjarklaustur.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 25.000 km á ári.
Verklok eru í apríl 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 3. febrúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. mars 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.
Opnun tilboða 7. mars 2023. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Vík – Kirkjubæjarklaustur.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 25.000 km á ári.
Verklok eru í apríl 2026.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Snilldarverk ehf., Hella | 142.470.000 | 128,0 | 29.592.000 |
Helgi Grétar Kjartansson, Fossi á Síðu | 139.650.000 | 125,5 | 26.772.000 |
Ármann Daði Gíslason, Ytri-Ásum | 112.878.000 | 101,4 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 111.292.500 | 100,0 | 1.585.500 |