Útboðsnúmer 22-110
Vetrar­þjón­usta 2023-2026, Tjörn – Einars­stað­ir – Kross – Tjörn

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst febrúar 2023
    • 2Opnun tilboða mars 2023
    • 3Samningum lokið mars 2023

2 febrúar 2023Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Tjörn – Einarsstaðir – Kross – Tjörn.

 

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 40.000 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 3. febrúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. mars 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.


7 mars 2023Opnun tilboða

Opnun tilboða 7. mars 2022. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Tjörn – Einarsstaðir – Kross – Tjörn.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 40.000 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Áætlaður verktakakostnaður
111.802.500
100,0
38.787.699
Nesbræður ehf., Akureyri
106.425.000
95,2
33.410.199
Jón Ingi Hinriksson ehf., Bergholti
98.694.000
88,3
25.679.199
Höfðavélar ehf., Húsavík
98.220.000
87,9
25.205.199
Vinnuvélar Reynis B Ingvasonar ehf., Húsavík
73.014.801
65,3
0

29 mars 2023Samningum lokið

Vinnuvélar Reynis B Ingvasonar ehf.,Húsavík
kt. 6704051090