Útboðsnúmer 22-109
Vetrar­þjón­usta 2023-2026, Sauð­árkrókur – Keti­lás

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst febrúar 2023
    • 2Opnun tilboða mars 2023
    • 3Samningum lokið mars 2023

2 febrúar 2023Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á tilteknum þjónustu leiðinni Sauðárkrókur – Ketilás.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 19.000 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 3. febrúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. mars 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.


7 mars 2023Opnun tilboða

Opnun tilboað 7. mars 2023. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á tilteknum þjónustu leiðinni Sauðárkrókur – Ketilás.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 19.000 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Vinnuvélar Símonar ehf., Sauðárkróki
91.650.000
107,7
21.014.880
Áætlaður verktakakostnaður
85.108.500
100,0
14.473.380
Steypustöð Skagafjarðar ehf., Sauðárkróki
84.450.000
99,2
13.814.880
Vélaþjónustan Messuholti ehf., Varmahlíð
70.635.120
83,0
0

30 mars 2023Samningum lokið

Vélaþjónustan Messuholti ehf.,Varmahlíð
kt. 6403090830