Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Kísilvegur – Hvammavegur.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 13.000 km á ári.
Verklok eru í apríl 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 3. febrúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. mars 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.
Opnun tilboða 7. mars 2023. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Kísilvegur – Hvammavegur.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 13.000 km á ári.
Verklok eru í apríl 2026.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Áætlaður verktakakostnaður | 66.835.500 | 100,0 | 21.622.500 |
Jón Ingi Hinriksson ehf., Bergholti | 56.010.000 | 83,8 | 10.797.000 |
Höfðavélar ehf., Húsavík | 55.398.000 | 82,9 | 10.185.000 |
Vinnuvélar Reynis B Ingvasonar ehf., Húsavík | 45.213.000 | 67,6 | 0 |