Útboðsnúmer 22-116
Vetrar­þjón­usta 2023-2026, Kirkju­bæjarklaustur – Fagur­hóls­mýri

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst febrúar 2023
    • 2Opnun tilboða mars 2023
    • 3Samningum lokið maí 2023

2. febrúar 2023Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Kirkjubæjarklaustur – Fagurhólsmýri.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 24.000 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 3. febrúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. mars 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.


7. mars 2023Opnun tilboða

Opnun tilboða 7. mars 2023. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Kirkjubæjarklaustur – Fagurhólsmýri.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 24.000 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Helgi Grétar Kjartansson, Fossi á Síðu
135.900.000
127,2
14.358.000
Ármann Daði Gíslason, Ytri-Ásum
121.542.000
113,8
0
Áætlaður verktakakostnaður
106.848.000
100,0
14.694.000

25. maí 2023Samningum lokið

Ármann Daði Gíslason, Ytri-Ásum
kt. 1001952839