Útboðsnúmer 22-123
Vetrar­þjón­usta 2023-2026, Djúp­vegur, Reykja­nes – Bolungar­vík

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst febrúar 2023
    • 2Opnun tilboða mars 2023
    • 3Samningum lokið apríl 2023

2 febrúar 2023Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Reykjanes – Bolungarvík.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 43.500 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 3. febrúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. mars 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.


7 mars 2023Opnun tilboða

Opnun tilboða 7. mars 2023. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Reykjanes – Bolungarvík.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 43.500 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Áætlaður verktakakostnaður
193.657.500
100,0
2.688.060
Steypustöð Ísafjarðar ehf., Ísafirði
190.969.440
98,6
0

25 apríl 2023Samningum lokið

Steypustöð Ísafjarðar ehf.,Ísafirði
kt. 6103070350