Útboðsnúmer 23-033
Þorláks­höfn, Svartaskers­bryggja, endur­bygg­ing þekju og lagna 2023

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst mars 2023
    • 2Opnun tilboða apríl 2023
    • 3Samningum lokið maí 2023

29 mars 2023Útboðsauglýsing

Hafnarstjórn Þorlákshafnar óskar eftir tilboðum í verkið endurbyggingu þekju og lagna á Svartaskersbryggju í Þorlákshöfn.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. október 2023.

Helstu verkþættir
Rífa upp og saga malbik.
Leggja vatnslagnir og ídráttarrör fyrir rafmagn.
Steypa um rafmagnshús.
Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypta þekju og malbik.
 Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju alls um 2350 m².
Koma fyrir rafmagnskössum og vatnsbrunnum á bryggjunni.
Malbika þekju um 5000 m².

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 29.   mars 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. apríl 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.


18 apríl 2023Opnun tilboða

Opnun tilboða 18. apríl 2023. Hafnarstjórn Þorlákshafnar óskaði eftir tilboðum í verkið endurbyggingu þekju og lagna á Svartaskerbryggju í Þorlákshöfn.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. október 2023.

 

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Áætlaður verktakakostnaður
179.899.100
100,0
31.043.480
Stálborg ehf., Garðabæ
148.855.620
82,7
0

30 maí 2023Samningum lokið

Stálborg ehf.,Garðabæ
kt. 5911042410