Vegagerðin býður hér með út styrkingu og malbikun á 3 km kafla á Þorlákshafnarvegi (38-03) frá Eyrarbakkavegi að Suðurstrandarvegi.
Skeringar | 1.900 m3 |
Styrktarlag 0/63 | 720 m3 |
Burðarlag 0/22 | 4.300 m3 |
Slitlagsmalbik á möl 6 cm | 25.200 m2 |
Frágangur fláa | 23.100 m2 |
Verki skal að fullu lokið 1. ágúst 2025.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudaginn 10. febrúar 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. febrúar 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.