Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með endurbyggingu Snæfellsnesvegar (54) á um 5,4 km kafla í Hörðudal. Innifalið í verkinu er bygging tveggja brúa, 43 m langrar brúar yfir Skrautu og 52 m brúar yfir Dunká.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.
Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð 30. júní 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 7. janúar 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. janúar 2022.
Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Föstudaginn 28. janúar 2022 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.
Opnun tilboða 28. janúar 2022. Tilboðu í eftirlit og ráðgjöf með endurbyggingu Snæfellsnesvegar (54) á um 5,4 km kafla í Hörðudal. Innifalið í vekinu er bygging tveggja brúa, 43 m langrar brúar yfir Skrautu og 52 m brúar yfir Dunká.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.
Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð 30. júní 2023.
Eftir lok tilboðsfrests, þriðjudaginn 25. janúar 2022, var bjóðendum tilkynnt um nöfn þátttakenda í
útboðinu. Allir bjóðendur uppfylltu hæfisskilyrði útboðsins og stóðust hæfnimat. Verðtilboð bjóðenda
opnuð 28. janúar 2022.
Hnit Verkfræðistofa hf., Reykjavík | 25.668.000 | 129,8 | 4.600 |
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Hnit verkfræðistofa hf., Reykjavík | 25.668.000 | 129,8 | 4.600.000 |
Efla hf, Reykjavík | 25.264.730 | 127,7 | 4.196.730 |
Verkís hf., Reykjavík | 21.999.960 | 111,2 | 931.960 |
Mannvit hf, Kópavogur | 21.068.000 | 106,5 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 19.780.000 | 100,0 | 1.288.000 |