Skagastrandarhöfn óskar eftir tilboðum í verkið „Skagaströnd – Ásgarður, þekja og lagnir 2025“.
Brjóta og fjarlæga gamla þekju um 500 m2 |
Steypa 2 stöpla undir ljósamöstur |
Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn og koma fyrir rafmagnskápum |
Leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum |
Leggja fráveitulögn og koma fyrir niðurföllum |
Gróf- og fínjafna undir steypu |
Slá upp mótum, járnbinda og steypa undirstöðu fyrir 8 polla |
Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 1.540 m² |
Verki skal að fullu lokið 31. ágúst 2025.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 10. febrúar 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. febrúar 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Friðrik Jónsson ehf., Sauðárkróki | 107.135.258 | 122,1 | 31.232.838 |
Neglan Byggingafélag ehf | 89.997.500 | 102,6 | 14.095.080 |
Áætlaður verktakakostnaður | 87.759.100 | 100,0 | 11.856.680 |
Verk lausn ehf., Sauðárkrókur | 75.902.420 | 86,5 | 0 |