Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í endurbyggingu Efrigarðs í Sauðárkrókshöfn.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 11. október 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. október 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Helstu magntölur og verkþættir |
Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi bryggju. |
Þilskurður fyrir stálþilsrekstur um 90 m. |
Grafa fyrir akkerisstögum og ganga frá stagbita og stögum. |
Jarðvinna, fylling og þjöppun. |
Reka niður 67 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ20-700 og ganga frá stagbitum og stögum. |
Steypa um 90 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum. |
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Hagtak hf., Hafnarfirði | 322.500.000 | 199,6 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 161.562.750 | 100,0 | 160.937.250 |