Vegagerðin býður hér með út endurbyggingu Norðausturvegar á um 7,6 km kafla, frá Langanesvegi og að Vatnadal á Brekknaheiði.
Bergskeringar í vegstæði | 1.750 m3 |
Fyllingar | 136.400 m3 |
Fyllingar í farg | 53.500 m3 |
Fláafleygar | 27.000 m2 |
Ræsalögn | 544 m |
Stálplöturæsi | 26 m |
Styrktarlag | 39.200 m3 |
Burðarlag | 12.000 m3 |
Klæðing | 52.500 m2 |
Girðingar | 500 m |
Verki skal að fullu lokið 1. ágúst 2027.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 17. febrúar 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. mars 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Héraðsverk ehf., Egilsstöðum | 1.189.094.847 | 129,0 | 410.832.747 |
Þ.S. Verktakar ehf., Egilsstöðum | 1.044.744.744 | 113,3 | 266.482.644 |
Áætlaður verktakakostnaður | 921.789.400 | 100,0 | 143.527.300 |
Grafa og grjót ehf., Hafnarfirði | 868.185.584 | 94,2 | 89.923.484 |
Skútaberg ehf., Akureyri | 862.305.200 | 93,5 | 84.043.100 |
VBF Mjölnir ehf., Selfossi | 778.262.100 | 84,4 | 0 |