Útboðsnúmer 23-035
Hreins­un þjóð­vega í Reykja­vík og Hval­fjarðar­göng­um

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst apríl 2023
    • 2Opnun tilboða maí 2023
    • 3Samningum lokið

7 apríl 2023Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út hreinsun þjóðvega í Reykjavík og Hvalfjarðargöngum árin 2023- 2025. Verkið felur í sér sópun meðfram kantsteinum, þvott á gatnamótum og tilheyrandi umferðareyjum, hreinsun svæða meðfram þjóðvegum ásamt þvotti á Hvalfjarðargöngum með vélsópum, vatnsbílum, sugum og öðrum tækjum sem henta þykir. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár með samþykki beggja aðila, eitt ár í senn.

Verkinu skal að fullu lokið 15. mars 2025.

Útboðsgögnin eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 7. apríl 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. maí 2023

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsfjárhæðir.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.

Helstu magntölur á ári fyrir þjóðvegi í Reykjavík eru
Sópun meðfram kantsteinum 
544.024 m
Þvottur á gatnamótum og umferðareyjum 
13.840 m2
Sérverkefni, viðbótarverk, götusópur 
30 klst.
Sérverkefni, viðbótarverk, vatnsbíll 
30 klst.
Sérverkefni og viðbótarverk, ryksugubíll 
30 klst.
Sérverkefni og viðbótarverk, fylgdarbíll 
30 klst.
Ruslahreinsun meðfram þjóðvegum 
13 stk.
Helstu magntölur á ári fyrir Hvalfjarðargögn eru
Sópun meðfram kantsteinum 
138.240 m
Hvalfjarðagöng, hálfþvottur 
2 stk.
Hvalfjarðargöng, heilþvottur 
1 stk.

9 maí 2023Opnun tilboða

Opnun tilboða 9. maí 2023. Hreinsun þjóðvega í Reykjavík og Hvalfjarðargöngum árin 2023-
2025. Verkið felur í sér sópun meðfram kantsteinum, þvott á gatnamótum og tilheyrandi umferðareyjum, hreinsun svæða meðfram þjóðvegum ásamt þvotti á Hvalfjarðargöngum með vélsópum, vatnsbílum, sugum og öðrum tækjum sem henta þykir. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár með samþykki beggja aðila, eitt ár í senn.

Verkinu skal að fullu lokið 15. mars 2025.

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Áætlaður verktakakostnaður
159.892.480
100,0
13.127.648
Hreinsitækni ehf., Reykjavík
146.764.832
91,8
0