Vegagerðin býður hér með út gerð og endurmótun Gnúpverjavegar (325). Um er að ræða styrkingu á um 1 km löngum vegarkafla frá Mön að Ásaskóla auk útlagningar burðarlags og klæðingar á veginn og aðliggjandi tengingar.
Skeringar | 800 m3 |
Fylling | 1.100 m3 |
Fláafleygar | 300 m3 |
Styrktarlag | 1.200 m3 |
Burðarlag | 1.100 m3 |
Tvöföld klæðing | 6.000 m2 |
Frágangur fláa | 6.600 m2 |
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 18. júní 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. júlí 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Ekkert tilboð barst fyrir lok tilboðsfrests.