Útboðsnúmer 24-041
Áætl­unar­flug á Íslandi – sérleyf­issamn­ingur: Reykja­vík – Húsa­vík – Reykja­vík 2024-2027

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst maí 2024
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

31 maí 2024Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út rekstur á áætlunarflugi á Íslandi – sérleyfissamningur, á eftirfarandi flugleið:
1. Reykjavík – Húsavík – Reykjavík
Endurgreiðslu kostnaðar sem af rekstri í áætlunarflugi leiðir að frádregnum tekjum, þ.e. að annast áætlunarflug með farþega og vörur til og frá Húsavík, fer samkvæmt nánari skilgreiningu í útboðslýsingu.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og meðföstudeginum 31.  maí 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. júlí 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.