Vegagerðin býður hér með út rekstur á áætlunarflugi á Íslandi – sérleyfissamningur, á eftirfarandi flugleið:
1. Reykjavík – Vestmannaeyjar– Reykjavík
Endurgreiðslu kostnaðar sem af rekstri í áætlunarflugi leiðir að frádregnum tekjum, þ.e. að annast áætlunarflug með farþega og vörur til og frá Vestmannaeyjum, fer samkvæmt nánari skilgreiningu í útboðslýsingu.
Samningstími er 3 ár, frá 1. september 2026 til og með 30. nóvembert 2029, með möguleika á framlengingu , tvisvar sinnum um eitt ár í senn.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 13. febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. mars 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Icelandair ehf., Hafnarfirði | 146.250.000 | 119,9 | 9.951.240 |
Norlandair, Akureyri | 136.298.760 | 111,8 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 121.952.460 | 100,0 | 14.346.300 |