Haga­braut (286-01) í Rangar­þingi ytra

  • TegundVegir
  • StaðaKynningargögn
  • Svæði
    • Suðurland

Vegagerðin kynnir fyrirhugaðar framkvæmdir á rúmlega 7,4 km löngum kafla á Hagabraut (286), milli Landvegar (26) og Reiðholts í Holtum í Rangárþingi ytra. Um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar. Um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar.

Vegagerðin kynnir fyrirhugaðar framkvæmdir á rúmlega 7,4 km löngum kafla á Hagabraut (286), milli Landvegar (26) og Reiðholts í Holtum í Rangárþingi ytra. Um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar.

Í tengslum við framkvæmdina verður ráðist í umferðaröryggisaðgerð á Landvegi (26), skammt austan Hagabrautar (286), þar sem skering verður gerð við hlið vegar og efni hennar nýtt í endurbyggingu Hagabrautar (286).

Kanna þarf matsskyldu framkvæmdarinnar samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.

Markmið framkvæmdarinnar er að bæta vegasamgöngur á svæðinu, auka umferðaröryggi íbúa og annara vegfarenda á Hagabraut (286) og stuðla að greiðari samgöngum í Rangárþingi ytra. Vegurinn verður hærri og aðeins breiðari en núverandi vegur, með bundnu slitlagi, bættum sjónlengdum og öruggum hliðarsvæðum. Ekki er um styttingu að ræða heldur fyrst og fremst vegabætur til að auka umferðaröryggi.

Ýtarlegri upplýsingar um framkvæmdina má finna í meðfylgjandi skýrslu og teikningum.

 

Teikning fyrirhugað framkvæmdasvæði

Teikning fyrirhugað framkvæmdasvæði