Yfirborðsmerkingar koma ekki í staðinn fyrir umferðarskilti heldur eru þær notaðar til að leggja áherslu á umferðarmerkingar sbr. sebramerkingar við gangbrautarskilti.
Merkingar á yfirborði vega eru ætlaðar til að:
auðvelda vegfarendum akstur og þá sérstaklega í myrkri
stýra umferð
vekja athygli á hættum
fræða vegfarendur um aðstæður sem framundan eru og þar sem sýna þarf aðgát af einhverju tagi