20. mars 2026
Úthlut­un úr Rann­sókna­sjóði Vega­gerðar­innar fyrir árið 2026

Úthlutun úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar fyrir árið 2026 er lokið en umsóknarfrestur rann út 30. janúar síðastliðinn. Alls bárust 98 umsóknir og sótt var um samtals 326,1 milljón króna. Rannsóknaráð Vegagerðarinnar valdi 63 verkefni sem hljóta styrk að þessu sinni en sjóðurinn hafði 150 milljónir króna til ráðstöfunar í ár.

Rannsóknasjóður Vegagerðarinnar gegnir mikilvægu hlutverki í að styðja við nýsköpun og þróunarstarf á fagsviðum stofnunarinnar. Með sjóðnum er stuðlað að hagnýtum rannsóknum sem nýtast beint í verkefnum Vegagerðarinnar og efla þekkingu á sviði mannvirkja, umferðar, umhverfis og samfélags.

Dr. Ólafur Sveinn Haraldsson, forstöðumaður rannsóknadeildar Vegagerðarinnar, segist vera ánægður sem fyrr með niðurstöðu úthlutunar í ár. „Umsóknirnar voru fjölbreyttar og endurspegla vel þau fjölbreyttu viðfangsefni sem Vegagerðin stendur frammi fyrir. Rannsóknasjóðurinn er lykilverkfæri til að styðja við nýsköpun og þróun í okkar starfsemi,“ segir hann.

Verkefnin sem hlutu styrk í ár tengjast ýmsum þáttum starfsemi Vegagerðarinnar. Rannsóknum Vegagerðarinnar er skipt í fjóra flokka: mannvirki, umferð og umferðaröryggi, umhverfi og samfélag. Flokkunin endurspeglar breiddina í starfsemi Vegagerðarinnar og mikilvægi þess að þróa þekkingu á öllum sviðum.

Samþykktar umsóknir skiptust þannig:

  • Vegagerðin: 10 umsóknir – samtals 20,5 m.kr.
  • Verkfræðistofur: 20 umsóknir – samtals 55,3 m.kr.
  • Háskólar og tengdar stofnanir: 19 umsóknir – samtals 35,5 m.kr.
  • Opinberar stofnanir og fyrirtæki: 5 umsóknir – samtals 17,7 m.kr.
  • Aðrir: 9 umsóknir – samtals 21,0 m.kr.

Umsækjendur og verkefnisstjórar hafa fengið send skeyti um samþykkt eða synjun en upplýsingar um verkefni sem fengu styrk verða birtar á vef Vegagerðarinnar innan skamms.

Úthlutun fjárhæða 2026 eftir umsækjendum

Úthlutun fjárhæða 2026 eftir umsækjendum

Úthlutun fjárhæða 2026 eftir rannsóknarflokkum

Úthlutun fjárhæða 2026 eftir rannsóknarflokkum

Fjöldi samþykktra umsókna 2026 eftir rannsóknarflokkum

Fjöldi samþykktra umsókna 2026 eftir rannsóknarflokkum

Fjöldi samþykktra umsókna 2026 eftir umsækjendum

Fjöldi samþykktra umsókna 2026 eftir umsækjendum