2. júlí 2024
Umferð­in á Hring­vegin­um dróst saman í júní

Umferðin um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringveginum dróst saman um 1,4 prósent í júní mánuði. Líklegt verður að telja að slæmt veður í upphafi mánaðar gæti hafa haft áhrif á umferðina. Þótt ekki hafi verið slegið met í júní má reikna með að umferðin í ár aukist um nærri fimm prósent.

Milli mánaða 2023 og 2024
Talsvert minni umferð mældist í nýliðnum júní miðað við það sem búast hefði mátt við, þegar horft er til umferðar það sem af er ári.  Umferðin í júní dróst saman um 1,4% miðað við sama mánuð á síðasta ári. Það varð því ekkert umferðarmet slegið, þann mánuðinn.  Helsta ástæða þessa samdráttar er hugsanlega sú að slæm tíð var í upphafi mánaðarins. Ekki lágu fyrir gögn frá ferðamálastofu um fjölda brottfara erlendra ferðamann frá Leifsstöð í júní, þegar þetta var tekið saman.

Umferð jókst lítillega um Suðurland og í kringum höfuðborgarsvæðið en dróst talsvert saman á öðrum svæðum.  Mest dróst umferð saman um mælisnið á Austurlandi eða um 15,5%, sem telja verður gríðar mikinn samdrátt. En á það ber að líta að umferð um mælisnið á Austurlandi vega minnst í heildarumferð lykilteljara.  Mesti einstaki samdrátturinn varð um Möðrudalsöræfi en þar mældist tæplega 17% samdráttur.

 

Umferð frá áramótum
Þrátt fyrir þennan samdrátt í júní hefur umferðin aukist um 4,6%, frá áramótum borið saman við sama tímabil á síðasta ári. Mest hefur umferðin aukist um Suðurland en 4,1% samdráttur mælist um Austurland og 3,1% samdráttur um Norðurland.

Umferð eftir vikudögum
Það sem af er árs hefur umferðin verið mest á föstudögum en minnst á laugardögum. Umferðin hefur aukist alla vikudaga en hlutfallslega mest hefur aukningin orðið á þriðjudögum eða um 6% en minnst á miðvikudögum eða 3,4%.

Horfur út árið 2024
Hegði umferðin sér, það sem eftir lifir árs, líkt og í meðalári má búast við tæplega 5% aukningu umferðar núna í ár borið saman við síðasta ár.