5. júní 2023
Umferð­in á Hring­vegi eykst áfram

Umferðin í nýliðnum maí á Hringveginum jókst um 2,3 prósent miðað við sama mánuð fyrir ári síðan. Frá áramótum hefur umferðin aukist um 10 prósent og útlit er fyrir að umferðin í ár aukist jafn mikið. Þetta er mjög mikil aukning. Umferðin í maí hefur aldrei verið meiri.

Umferðin hlutfallsleg breyting

Umferðin hlutfallsleg breyting

Milli mánaða

Umferðin jókst um 2,3% milli maí mánaða árin 2022 og 2023, yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi.  Þessi aukning varð til þess að nýtt umferðarmet var slegið í maí mánuði, en fyrra met var frá síðasta ári.

Umferð jókst á öllum svæðum, nema við höfuðborgarsvæðið, og mest um Norðurland.

Af einstaka stöðum jókst umferð mest um mælisnið á Möðrudalsöræfum eða um 23,1%, sjónarmun meira en um mælisnið á Mýrdalssandi.

 

Umferð, frá áramótum

Nú hefur umferð aukist um 10%, frá áramótum, sem er um þrisvar sinnum meira en meðaltalsaukning, miðað við árstíma, frá árinu 2005.

Umferð eftir vikudögum

Umferð hefur aukist í öllum vikudögum en mest á mánudögum eða um 15,8% og minnst á sunnudögum eða um 2,7%. Hlutfallslega hefur umferð aukist um 10,9% á virkum dögum en um 8,2% um helgar.  Þetta gæti gefið vísbendingu um aukin umsvif.

Horfur út árið 2023

Samkvæmt spálíkani umferðardeildar Vegagerðarinnar gæti umferðin um Hringveginn aukist um 10,0% miðað við síðasta ár.

Hafa verður þó í huga að með hækkandi stýrivöxtum, gæti dregið úr umsvifum í þjóðfélaginu, sem aftur getur dregið úr vexti umferðar.

Umferðin hlutfallsleg breyting

Umferðin hlutfallsleg breyting