Vegagerðin stendur fyrir námskeiði í öryggisstjórnun vega með sérstakri áherslu á umferðaröryggismat og umferðaröryggisrýni. Námskeiðið verður haldið dagana 8 – 10 október frá kl. 8:30-16:00 í húsnæði Vegagerðarinnar að Suðurhrauni 3.
Námskeiðið er haldið með það að markmiði að veita starfsleyfi varðandi umferðaröryggismat og -rýni og útskrifa hæfa umferðaröryggisrýna.
Í 2. gr. reglugerðar nr. 292/2014 segir m.a.:
„Til að öðlast starfsleyfi sem umferðaröryggisrýnir skal viðkomandi hafa viðeigandi reynslu eða þjálfun í vegahönnun, tæknivinnu á sviði umferðaröryggis og slysagreiningu og ljúka námskeiði í samræmi við námskrá sem Vegagerðin hefur látið semja og staðfest hefur verið af ráðherra“.
Auk þess sem reglugerðin kveður á um þarf viðkomandi að hafa tekið þátt í vinnu við umferðaröryggisrýni eða -mat í að lágmarki þrjú skipti til þess að öðlast starfsleyfi.
Rétt til setu á námskeiðinu hafa þeir sem hafa viðeigandi reynslu eða þjálfun í vegahönnun, tæknivinnu á sviði umferðaröryggis eða slysagreiningu samkvæmt mati Vegagerðarinnar. Við skráningu skal tekið fram hvaða reynslu eða þjálfun viðkomandi telur viðeigandi.
Skráning fer fram hér
Hægt að skrá sig til og með 1. október 2024.
Dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda: 25 manns.
Kostnaður er kr. 60.000,- innifalið er kaffi og hádegismatur alla dagana.
Frekari upplýsingar veitir Margrét Ósk Aronsdóttir, verkefnisstjóri umferðaröryggisrýni hjá Vegagerðinni, margret.o.aronsdottir@vegagerdin.is, s. 522-1234