13. janúar 2022
Umferðar­ljós við fjöl­farin gatna­mót

Vegagerðin og Seltjarnarnesbær hafa unnið saman að framkvæmdum vegna umferðarljósa við gatnamót Nesvegar og Suðurstrandar.

Umferðarljós sem stýra umferð um gatnamót Suðurstrandar og Nesvegar voru nýlega uppfærð í því skyni að auka umferðaröryggi, ekki síst fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur sem þvera gatnamótin. Töluverð umferð barna á leið í skóla og frístundir er um gatnamótin sem undirstrikar mikilvægi þess að þau séu útfærð á sem öruggastan hátt.

  • Hönnun gatnamótanna var yfirfarin með tilliti til staðsetningu umferðarljósa, breidd gönguþverana og aðgengis, m.a. hvað varðar aðgengi fyrir alla.
  • Umferðaljósunum var breytt þannig að rautt ljós logar fyrir ökumenn á meðan grænt ljós logar fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur sem þvera ljósin.
  • Kalla þarf eftir grænu gönguljósi með því að ýta á hnapp.
  • Hægt er að kalla eftir lengri grænum tíma fyrir gönguljós með því að ýta á hnapp undir hnappaboxi, þurfi gangandi vegfarandi lengri tíma til að komast yfir gatnamótin.Götulýsing við gangbrautirnar hefur verið bætt.

Ljósin eru orðin virk og verið er að leggja lokahönd á yfirborðsfrágang. Veðrið og árstíminn hefur áhrif á lokafrágang sem á að klárast í vor. VSÓ ráðgjöf sá um hönnun og veitti ráðgjöf í verkefninu.