Stefnt er að því að bjóða út þverun Þorskafjarðar í næstu viku en nýverið náðist samkomulag við landeigendur í Þorskafirði.
Verkið ber heitið Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, Kinnastaðir-Þórustaðir. Í því felst nýbygging Vestfjarðavegar á um 2,7 km kafla við austanverðan Þorskafjörð. Meðal verkefna er bygging 260 metra langrar steyptrar brúar yfir Þorskafjörð. Vegurinn er alfarið byggður í nýju vegstæði en tengist núverandi Vestfjarðavegi í báða enda.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES).