Siglt var með tækjabúnað á pramma út í Efri-Laugardælaeyju í Ölfusá fyrr í vikunni, sem nýta á við jarðvegsrannsóknir vegna byggingar nýrrar Ölfusárbrúar.
Vegna flóða og jakaburðar í Ölfusá, sem sjaldan hefur verið vatnsmeiri, varð að sæta lagi við að koma búnaðinum út í eyjuna. Í byrjun vikunnar sjatnaði í ánni og gafst þá færi á að hefja flutningana frá austurbakka árinnar, en þar var búið að koma upp lendingu fyrir prammann. Félagar úr Björgunarfélagi Árborgar voru til öryggis á staðnum og fylgdust grannt með prammanum sigla á milli lands og eyju.
Berglög í Efri-Laugardælaeyju voru rannsökuð árið 2015 en nú verða gerðar enn frekari rannsóknir á samsetningu jarðvegarins því reisa á 60 metra háan turn sem mun bera uppi nýja Ölfusárbrú. Vegna verkhönnunar á undirstöðu fyrir turninn þarf að gera enn ítarlegri og nákvæmari rannsóknir á samsetningu jarðvegarins, að sögn Höskuldar Tryggvasonar, verkefnastjóra á framkvæmdadeild Vegagerðarinnar.
Starfsfólk Vatnsborunar ehf. mun sjá um rannsóknirnar, en félagið er undirverktaki hjá ÞG verk sem sér um byggingu brúarinnar.
Nú er unnið við jarðvegsskipti á vegtengingum austan árinnar og einnig er búið að setja upp vinnubúðir austan við Laugardælaveg. Áætlað er að fljótlega hefjist vinna við bergskeringar vestan árinnar en það krefst þess að loka þarf göngustígnum í Hellisskógi. Eins og stendur er unnið að útfærslu á hjáleiðum fyrir gangandi vegfarendur nær árbakkanum.
Ný Ölfusárbrú er hluti af verkefninu Hringvegur (1) um Ölfusá sem felst í að færa Hringveginn út fyrir þéttbýlið á Selfossi. Byggð verður 330 metra löng og 19 metra breið stagbrú, nýr 3,7 km vegarkafli auk um 1 km af öðrum tveggja akreina vegum. Ný vegamót verða gerð austan Selfoss, undirgöng undir Hringveg fyrir gangandi, hjólandi og hestamenn ásamt undirgöngum fyrir bíla og gangandi. Auk umferðar mun brúin bera uppi lagnir veituaðila, rafmagn, ljósleiðara, heitt vatn og kalt.
Áætlað er að hægt verði að taka nýja Ölfusárbrú í notkun haustið 2028.