Vegna vinnu Veggerðarinnar á brúnni yfir Elliðaá við Árbæjarstíflu í Reykjavík á milli Breiðholts og Árbæjar verður Höfðabakki lokaður milli Bæjarháls og Stekkjarbakka miðvikudaginn 5. júní klukkan 22:00 til 22:30 og fimmtudaginn 6. júní klukkan 22:00 til 22:30.
Vegna vinnu Veggerðarinnar á brúnni yfir Elliðaá við Árbæjarstíflu í Reykjavík á milli Breiðholts og Árbæjar verður Höfðabakki lokaður milli Bæjarháls og Stekkjarbakka miðvikudaginn 5. júní klukkan 22:00 til 22:30 og fimmtudaginn
6. júní klukkan 22:00 til 22:30.
Viðgerðir á brúnni yfir Elliðaár við Árbæjarstíflu hófust í apríl síðastliðnum og áætlanir gera ráð fyrir að verkinu ljúki um miðjan júní. Brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar voru kallaðir til Reykjavíkur til að sinna þessu verkefni.
Viðgerðirnar felast meðal annars í að endurnýja gönguvegrið, losa lélega steypu með vatnsbrotsvél, brjóta niður annan bríkurkantinn, taka burtu vegrið og ljósastaura og byggja kantinn upp á nýtt. Steypa á nýja brík og jafnframt setja upp nýtt vegrið og nýja ljósastaura. Þá verður skipt um þensluraufar í brúargólfinu. Einnig er fyrirhugað að lyfta brúnni upp til að hægt verði að skipta um legur í báðum landstöplum og lagfæra í kringum þær.
Hámarkshraði um brúna hefur verið lækkaður í 30 km/klst. Hjáleið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur er ofan brúarinnar við Árbæjarstíflu. Hliðra þarf akreinum og verða göngu- og hjólastígar á brúnni nýttir fyrir bílaumferð. Búast má við umferðartöfum meðan á viðgerðum stendur en vegfarendur eru sérstaklega beðnir um að sýna tillitssemi og aka með varúð um vinnusvæðið.
Þegar brúnni verður lyft upp verður henni lokað og umferð vísað niður á Reykjanesbraut og um Ártúnsbrekku.
Vinnusvæðið er afmarkað austan megin á brúnni en vinnuflokkar Vegagerðarinnar sjá um viðgerðirnar. Vinnuskúrar voru settir upp í Elliðaárdal.
Tekið verður sérstakt tillit til viðkvæms lífríkis í Elliðaánum og þess að veiðitímabilið hefst um miðjan júní. Áætlað er að verkinu ljúki í kringum 20. júní.
Brúin sem var byggð árið 1981 er í tveimur höfum og 105 metrar að lengd. Lengst af var hún í eigu Vegagerðarinnar en er nú í veghaldi Reykjavíkurborgar þar sem brúin er hluti af vegum og vegamannvirkjum sem færðust úr flokki skilavega og yfir í flokk sveitarfélagsvega þann 1. janúar 2022.