9. nóvember 2023
Stöð­ug vökt­un vegna jarð­hrær­inganna

Vegagerðin fylgist stöðugt með vegakerfinu á Reykjanesi og fer daglega í eftirlitsferðir og oftar ef stórir skjálftar ríða yfir. Þá hefur Vegagerðin sett upp myndavél á Þorbirni til að fylgjast betur með því svæði þar sem möguleg eldsumbrot gætu hafist. Litlar sprungur hafa myndast í yfirborði Grindavíkurvegar í jarðskjálftum síðustu daga.

Sprungurnar eru allar litla, innan við sentimetra, sumar eru eldri sprungur sem hafa stækkað aðrar nýjar. Þær hafa ekki áhrif á burð vegarins eða öryggi þannig að ekki er ástæða til að hafa áhyggjur. Vegagerðin fylgist grannt með öllum breytingum á vegakerfinu á þessu svæði og mun bregðast hratt við ef þörf verður á því. Þetta er staða sem hefur komið upp í fyrri jarðskjálftahrinum þannig að það er komin nokkur reynsla á að fylgjast með framvindunni.

Myndavélin sem Vegagerðin var að setja upp á Þorbirni horfir á annað svæði en aðrar vélar á Þorbirni eða á Sýlingafell og svæði fyrir sunnan, svæði austan Grindavíkurvegar. Þessi vél er enn sem komið er að minnsta kosti ekki á vefnum en nýtist starfsmönnum sem fylgjast stöðugt með framvindunni.

Vegagerðin hefur einnig verið að aðstoða við að tryggja fjarskiptasamband með því að tryggja rafmagn á þremur vitum á svæðinu sem bera fjarskiptamöstur. Unnið er með Mílu sem birti þessar upplýsingar um sín viðbrögð í gær

Af Facebooksíðu Mílu:
Við fylgjumst náið með stöðunni á Reykjanesi

Við hjá Mílu erum búin að vera að undirbúa okkur fyrir mögulegar sviðsmyndir jarðhræringa á Reykjanesi, til að tryggja sem best fjarskipti á svæðinu ef á reynir️.
Undirbúningur okkar felst í því að:

  • Flytja rafstöðvar inn á svæðið til að hægt sé að halda uppi fjarskiptaþjónustu ef rafmagn fer af í lengri tíma
  • Undirbúa starfsfólk og tryggja að efni sé til staðar ef fara þarf í viðgerðir á mikilvægum ljósleiðarastrengjum
  • Bæta við fjarskiptum í lofti milli Reykjanesvita og Hópsnesvita til að tryggja fjarskipti á svæðinu yst á Reykjanesi, fari strengir í jörðu í sundur í eldgosi.


Við tökum stöðuna reglulega og metum hvaða aðgerða kann að verða þörf á að grípa til. Við erum á vaktinni allan sólarhringinn og fylgjumst með stöðu fjarskipta á landinu og bregðumst við um leið og þarf