Ræsi á Hringveginum milli Hvalfjarðarganga og Borgarness við Tungufljót stíflaðist fyrr í dag. Hefur í kjölfarið runnið efni úr veginum. Unnið er að viðgerð en nauðsynlegt reyndist að loka annarri akrein vegarins. Hugsalega kemur til lokunar en umferð er nú stýrt á þessu svæði. Lokunin er norðan vegamóta Hvalfjarðarvegar (47) og Hringvegar (1). Tilkynningar um breytingar á ástandinu munu birtast á umferðin.is. Til lokunar gæti komið með stuttum fyrirvara.
Ræsið stíflaðist í vatnsveðrinu sem hefur gengið yfir landi og í kjölfarið rann töluvert efni úr veginum þannig að nauðsynlegt reyndist að loka akreininni í suðurátt og er umferð nú stýrt um svæðið af starfsmönnum Vegagerðarinnar. Ökumenn eru hvattir til að aka varlega og hlýða hraðatakmörkunum.
Ef vel gengur ætti að vera hægt að koma nýju ræsi fyrir án þess að rjúfa veginn. Breytist ástandið hinsvegar gæti til þess komið en leitast verður við að sá tími verðui sem stystur og hafa verktakar og tæki verið sett í viðbragðsstöðu þess vegna.
Allar frekari uplýsingar á umferðin.is.