Umferðin í nýliðnum júní er sú mesta sem mælst hefur yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar í júní en hún reyndist vera tæpum 6% meiri en í sama mánuði á síðasta ári og rétt rúmum 2% yfir gamla metinu, sem sett var árið 2019.
Útlit er fyrir að umferðin sé að ná fyrri styrk eftir bakslag vegna Covid-19 árið 2020 og 2021.
Hlutfallslega jókst umferðin mest á Austurlandi eða tæp 35% en minnst jókst umferðin við og í kringum höfuðborgarsvæðið eða um 1,4%.
Það sem af er ári hefur umferðin nú aukist um 3,6%. Mest hefur uppsöfnuð umferð aukist um mælisnið á Austurlandi en minnst um mælisnið á og í grennd við höfuðborgarsvæðið en þar mælist ennþá tæplega 1% samdráttur.
Frá áramótum hefur umferð aukist hlutfallslega mest á miðvikudögum en mánudagar mælast með um hálft prósent samdrátt.
Mest er ekið á föstudögum og minnst á laugardögum.
Núna stefnir í að umferðin geti aukist um 3,5% miðað við árið 2021. Gangi sú spá eftir yrði slegið nýtt met í umferðarmagni en þó aðeins rétt 0,2% meiri en hún hafði mest mælst, en það var árið 2018. Svo segja má að umferðin árið 2022 stefni í að vera jafn mikil og hún var árið 2018.