Slitlag á síðasta kafla Grafningsvegar
Framkvæmdir eru hafnar við verkið Grafningsvegur efri (360), Ýrufoss – Grafningsvegur neðri. Þetta er síðasti malarkaflinn á Grafningsvegi sem nú verður allur með bundnu slitlagi.
Framkvæmdin nær frá norðurenda brúar við inntak Írafossvirkjunar að vegamótum Grafningsvegar neðri.
Verkið felst í styrkingu og breikkun Grafningsvegar sem einnig verður lagður bundnu slitlagi. Útboðskaflinn fylgir núverandi vegstæði nánast alveg með smávægilegum hæðarbreytingum. Núverandi vegur verður lagfærður og breikkaður. Hann var áður að jafnaði um 5 metra breiður en verður eftir lagfæringu 7 metra breiður (6,8 m bundið slitlag og 10 cm malar axlir). Nokkur ræsi í veginum verða endurnýjuð og eitt ristarhlið.
Framkvæmdakaflinn er 1,33 km að lengd og nær frá norðurenda brúar við inntak Írafossvirkjunar að vegamótum Grafningsvegar neðri.
Útboðið var auglýst 17. febrúar 2025 og opnað 4. mars. Tvö tilboð bárust í verkið en samið var við VBF Mjölni ehf. og Vestfirska verktaka ehf., Selfossi. Tilboðið hljóðaði upp á 92,7 milljónir króna sem var 1,3 milljónum yfir áætluðum verktakakostnaði.
Umferð um veginn er mismunandi eftir tíma ársins. Á sumrin fara að meðaltali um 500 bílar um veginn á sólarhring en aðeins rúmlega 100 á sólarhring yfir vetrartímann.
Sá kafli sem nú er verið að byggja upp er síðasti malarkaflinn á Grafningsvegi og að framkæmdum loknum verður vegurinn allur því lagður bundnu slitlagi.
Gert er ráð fyrir að verkinu verði lokið í ágúst á þessu ári.
Kort sem sýnir framkvæmdakaflann sem er 1,33 km að lengd.
– Skeringar 5.200 m3
– Styrktarlag 0/63 3.600 m3
– Burðarlag 0/22 2.000 m3
– Tvöföld klæðing 9.000 m2
– Frágangur fláa 16.200 m2
– Vegrið 390 m
Þessi grein birtist fyrst í Framkvæmdafréttum 2. tbl. 2025. Hlekkur á blaðið.
Eftir að framkvæmdum lýkur verður allur Grafningvegurinn með bundnu slitlagi.