Núverandi Baldur fer í sína síðustu ferð föstudaginn 13. október á milli Stykkishólms og Brjánslækjar. Farþegabáturinn Særún mun sigla í Flatey þar til nýr Baldur kemur til heimahafnar síðari hluta október. Unnið er að því í slipp í Hafnarfirði að gera nýja Baldur eða Röstina klára til siglinga á Breiðafirði.
Farþegabátur Sæferða, Særún, mun sigla í Flatey þar til nýi Baldur kemur til heimahafnar þegar lokið verður þeirri vinnu sem fram fer hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar í Hafnarfirði. Vonast er til þess að sem stystur tími líði þar til nýja ferjan hefur siglingar á milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flatey en reikna má með að slippvinnu ljúki síðari hluta október.
Særún mun sigla í Flatey sem hér segir:
Allar ferðir eru frá Stykkishólmi kl. 14:00 og frá Flatey kl. 16:00.