28. ágúst 2024
Samið við Mýflug um flug til Horna­fjarðar

Vegagerðin hefur samið við flugfélagið Mýflug um flug til Hornafjarðar.  Um er að ræða samning til þriggja ára þar sem flogið er átta sinnum í viku á milli Reykjavíkur og Hornafjarðar. Samningurinn gerir ráð fyrir að flogið sé á 19 sæta flugvél og vélin sé búin jafnþrýstibúnaði.

Vegagerðin hefur framlengt samningi við flugfélagið Mýflug um flug milli Reykjavíkur og Eyja um 2 viku.

Vegagerðin hefur framlengt samningi við flugfélagið Mýflug um flug milli Reykjavíkur og Eyja um 2 viku.

Vegagerðin býður út samninga við flugfélög um ríkisstyrkt innanlandsflug.  Í dag eru leiðirnar sem styrktar eru fimm en það eru flugleiðirnar Reykjavík – Bíldudalur, Reykjavík – Gjögur, Akureyri – Grímsey, Akureyri – Þórshöfn/Vopnafjörður og Reykjavík – Höfn.

Auk framangreindra flugleiða hafa flugleiðirnar Reykjavík – Vestmannaeyjar og Reykjavík – Húsavík verið boðnar út en um þau verkefni hefur ekki verið samið.

Fjöldi farþega á þessum flugleiðum hefur aukist talsvert og er aukningin á fyrstu sjö mánuðum þessa árs um rúm 17 %.