Vegagerðin, Reykjavíkurborg og Betri samgöngur standa fyrir opnu húsi um Sæbrautarstokk, þriðjudaginn 30. júní og fimmtudaginn 2. júlí frá klukkan 16:30-18:00 í Vogaskóla. Öllum er velkomið að mæta og kynna sér verkefnið. Íbúar í Vogabyggð og Vogahverfi eru sérstaklega hvattir til að koma og ræða við þau sem vinna að undirbúningi stokksins og umferðarlausnum á framkvæmdatíma.
Sæbrautarstokkur er eitt af lykilverkefnum Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Hann verður á tæplega 1 km löngum kafla frá mislægum gatnamótum við Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Á yfirborði stokksins verður nýr, grænn hverfisgarður sem bindur saman hverfin Vogahverfi og Vogabyggð.
Markmið Sæbrautarstokks er að bæta umhverfisgæði og tengja betur saman hverfi, greiða fyrir umferðarflæði á Sæbraut og að greiða götu Borgarlínunnar. Þá er mannvirkinu ætlað að bæta flæði vöruflutninga við Sundahöfn og er ein af forsendum Sundabrautar.
Hægt er að nálgast frekari gögn um málið í skipulagsgátt:
Deiliskipulagsbreytingar: https://www.skipulagsgatt.is/issues/2026/580
Umhverfismat: https://www.skipulagsgatt.is/issues/2026/339

Svona gæti stokkurinn litið út.
Umhverfismat vegna Sæbrautarstokks og deiliskipulagstillögur eru nú í auglýsingu í skipulagsgátt og er opið fyrir umsagnir til 8. júlí. Á opna húsinu gefst kostur á að kynna sér verkefnið í máli og myndum.
Fulltrúar Reykjavíkurborgar, Vegagerðarinnar, Betri samgangna og ráðgjafateymi verða á staðnum til að svara spurningum og veita nánari upplýsingar um skipulagstillögurnar, umhverfismatið, framkvæmdina og áhrif hennar á nærumhverfið.

Svona gæti yfirborð stokksins litið út.

Kort af fyrirhuguðum Sæbrautarstokki.

Svona gæti yfirborð stokksins litið út.

Dæmi um hvernig yfirborð stokksins gæti litið út.

Hér sést þversnið Sæbrautarstokks.

Fyrirhugað er að Sæbraut verði sett í stokk á um 1 km kafla.