22. október 2024
Rann­sókna­ráðstefna Vega­gerðar­innar 1. nóvem­ber 2024 – Skrán­ing stendur yfir

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2024 verður haldin föstudaginn 1. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut, kl. 09.00-16.30. Dagskráin er fjölbreytt og endurspeglar það margháttaða rannsókna- og þróunarstarf sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.

Almenn skráning – smelltu á hlekkinn

15 rannsóknaverkefni verða til umfjöllunar og samhliða veggspjaldasýning með um 12 verkefnum.

Ráðstefnan hefur alla jafna verið fjölsótt af starfsfólki Vegagerðarinnar, starfsfólki ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktaka og almenns áhugafólks um samgöngur og rannsóknir.

Á ráðstefnunni í ár verður mest fjallað um rannsóknir sem fengu fjárveitingar úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2023.

Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar liggur í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki er endilega einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.

Ráðstefnustjóri verður Margrét Silja Þorkelsdóttir.

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 1. nóvember 2024.

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 1. nóvember 2024.