29. ágúst 2024
Rann­sókna­ráðstefna Vega­gerðar­innar 1. nóvem­ber

Árleg Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin í 23. sinn föstudaginn 1. nóvember næstkomandi og fer fram á Hilton hóteli Suðurlandsbraut.

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin á Hilton hóteli 1. nóvember 2024.

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin á Hilton hóteli 1. nóvember 2024.

Ráðstefnan hefur skapað sér sérstöðu í ráðstefnuhaldi hér á landi því fáar ráðstefnur bjóða upp á jafn fjölbreytileg umfjöllunarefni. Ætíð kennir margra grasa á ráðstefnunni enda tekin fyrir um 20 rannsóknarverkefni hverju sinni. Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar hefur legið í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki endilega er einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.

Ráðstefnan hefur alla jafna verið fjölsótt af starfsfólki Vegagerðarinnar, starfsfólki ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktaka og almenns áhugafólks um samgöngur og rannsóknir. Í fyrra sóttu ráðstefnuna um 270 manns.

Á ráðstefnunni í ár verður mest fjallað um rannsóknir sem fengu fjárveitingar úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2023 en þó er það ekki einhlítt. Opnað verður fyrir skráningu í byrjun október.