Vegagerðin mun í byrjun árs 2025 hefja sendingar á SMS-boðum um hættu á snjóflóða- og hrunhættu til vegfarenda, sem eiga leið um Raknadalshlíð á Barðastrandavegi (62). Hægt er að gerast áskrifandi að þessum SMS-boðum með því að skrá sig á vef Vegagerðarinnar. Vegfarendur sem eiga oft leið um veginn, svo sem vegna atvinnu, skólasóknar eða af öðrum ástæðum, eru sérstaklega hvattir til að nýta sér þessa þjónustu.
Um er að ræða eftirfarandi stig vegna snjóflóðahættu:
A: Varað er við snjóflóðahættu á næstu klukkustundum.
B: Lýst yfir óvissustigi, sem þýðir að snjóflóðahætta er viðvarandi og vegfarendur hvattir til að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu.
C: Lýst yfir hættustigi. Veginum lokað.
D: Hættustigi aflýst og vegurinn opinn.
Hér er hægt að skrá sig á SMS-listann. Taka þarf fram nafn og gsm-símanúmer.
Einnig er hægt að senda tölvupóst þar sem kemur fram nafn og gsm-símanúmer á netfangið umferd@vegagerdin.is eða hafa samband í upplýsingasíma Vegagerðarinnar 1777.