Auglýst er eftir umsóknum um styrki til rannsóknaverkefna fyrir árið 2023.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til rannsóknaverkefna fyrir árið 2023.
Frestur til að skila umsóknum rennur út á miðnætti föstudaginn 27. janúar 2023.
Vegagerðin veitir árlega styrki til rannsóknaverkefna. Nú er auglýst eftir umsóknum um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna fyrir árið 2023.
Umsóknir þurfa að berast í seinasta lagi fyrir miðnætti föstudagskvöldið 27. janúar 2023. Nánari upplýsingar má nálgast hér á vef Vegagerðarinnar.
Fyrirspurnir má senda í tölvupósti til Ólafs Sveins Haraldssonar, forstöðumanns rannsóknadeildar, olafur.s.haraldsson(hjá)vegagerdin.is.
Myndin sem fylgir fréttinni er frá Rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar árið 2022.