27. mars 2025
Nýr samn­ingur um Vakt­stöð sigl­inga

Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar og Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, skrifuðu í gær undir samning í tengslum við rekstur Vaktstöðvar siglinga. Samningurinn er til tíu ára og fjallar um miðstöð fyrir mannaða vöktun Vaktstöðvarinnar sem rekin er allan sólarhringinn alla daga ársins. Vaktstöðin verður rekin í samstarfi við mannaða stjórnstöð Landhelgisgæslunnar en tæknilegur hluti Vaktstöðvarinnar (upplýsinga- og fjarskiptakerfi) er hins vegar í höndum Neyðarlínunnar.

Georg Lárusson og Bergþóra Þorkelsdóttir.

Georg Lárusson og Bergþóra Þorkelsdóttir.

Vegagerðin er ábyrg fyrir starfsemi Vaktstöðvar siglinga og fer með fjárhagslegt og faglegt eftirlit með Vaktstöðinni og verkefnum hennar.

Markmið samningsins er að uppfylla ákvæði laga um vaktstöð siglinga nr. 41/2003 en markmið laganna er að tryggja öryggi og skilvirkni siglinga í íslenskri efnahagslögsögu, eftirliti með umferð skipa og upplýsingaskiptum í þágu siglingaöryggis, öryggi skipa, farþega og áhafna og siglingavernd. Auk þess að efla varnir gegn mengun sjávar frá skipum, greiða fyrir flutningum á sjó og draga úr stjórnsýslubyrði skipafélaga.

Meðal helstu verkefna sem Vaktstöð siglinga sinnir er vöktun og eftirlit sjálfvirks tilkynningakerfis skipa (STK), þ.m.t. sjálfvirks alþjóðlegs auðkenningarkerfis skipa (AIS), móttaka og miðlun tilkynninga frá skipum sem flytja hættulegan og/eða mengandi varning, móttaka og miðlun neyðarkalla til viðeigandi aðila auk tilkynninga um óhöpp eða slys á sjó.