Norrænu brúarverðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi framlag á sviði brúarverkfræði með sérstaka áherslu á notagildi þess á Norðurlöndunum.
Verðlaunin eru veitt á fjögurra ára fresti og verða afhent fulltrúa eiganda þess mannvirkis sem verðlaunin hlýtur á ráðstefnunni Via Nordica 2024, sem haldin verður í Kaupmannahöfn 10.-12. júní 2024 ( www.vianordica2024.dk ).
Verðlaunin árið 2024 verða veitt fyrir nýja brú eða endurgerð brúar sem er staðsett á Norðurlöndunum og hefur verið lokið á árunum 2016 til júní 2024.
Verkefnið skal vera eftirtektarvert, frumlegt, skapandi eða á annan hátt fela í sér mikilvægt framlag, á sviði brúarverkfræði eða til þess svæðis sem verkefnið er staðsett á. Stærð brúarinnar skiptir ekki máli.
Hvert þátttökuland í brúarnefnd Norræna vegtæknisambandins (NVF) má tilnefna tvær brýr eða verkefni til verðlaunanna. Dómnefnd skipuð tveim fulltrúum frá hverju þátttökulandi mun velja sigurvegara.
Senda skal tilnefningu um brúarverkefni á Íslandi til formanns norrænu brúarnefndarinnar, Guðmundar Vals Guðmundssonar (gvgu@vegagerdin.is), fyrir 31.desember 2023.
Tilnefningin skal innihalda