7. maí 2024
Mikil aukn­ing umferðar á höfuð­borgar­svæð­inu í apríl

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum aprílmánuði reyndist ríflega tólf prósentum meiri en í sama mánuði fyrir ári síðan. Aldrei hafa fleiri ökutæki farið um mælisnið Vegagerðarinnar í apríl. Nýtt met hefur þannig verið slegið. Umferðin frá áramótum hefur aukist um fimm prósent.

Milli mánaða 2023 og 2024
Mjög mikil umferð var á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum apríl og mældist hún rúmlega 12% meiri en í sama mánuði fyrir ári síðan. Öll mælisniðin þrjú hækkuðu um tveggja stafa tölu, sem er fáséð en sem þó er helst að vænta í mars og apríl; og þá í kringum páska.

Mælisnið ofan Ártúnsbrekku jókst mest eða um rúmlega 15% en hin tvö sniðin, við Kópavogslæk og Dalveg, jukust um 11%.

Allt þetta leiddi til þess að nýtt umferðarmet var slegið í apríl á höfuðborgarsvæðinu. Aldrei áður hafa fleiri ökutæki farið yfir mælisniðin þrjú í apríl mánuði.

Frá áramótum
Núna hefur umferðin aukist um 5% frá áramótum, fyrir lykil mælisniðin þrjú.  Þessi aukning er aðeins minni en á síðasta ári, á sama tíma, en þá hafði umferðin aukist um 7,3%.

Umferð eftir vikudögum í apríl
Mest var ekið á föstudögum, í nýliðnum mánuði, en minnst á sunnudögum.  Umferðin á virkum er þó mjög svipuð, það er helst að mánudagar skeri sig úr, en helgarumferð er yfirleitt talsvert minni en á virkum dögum á höfuðborgarsvæðinu.

Mest jókst umferð á föstudögum, borið saman við sama mánuð á síðasta ári, og minnst á mánudögum.

Horfur út árið 2024
Samkvæmt reiknilíkani umferðardeildar gæti umferðin aukist um tæp 5% á þessu ári, miðað við síðasta ár.  Reiknilíkanið spáir því heldur minni aukningu en er á Hringvegi (7,5%).

Samkvæmt rannsóknum Vegagerðarinnar hefur reynst mjög mikil fylgni milli hagvaxtar og umferðar á höfuðborgarsvæðinu. Með það í huga kunna þessar umferðarspár (á höfuðborgarsvæði og Hringvegi) að vera í hærri kantinum gangi hagvaxtarspár Hagstofu og Seðlabanka eftir. Það verður því afar fróðlegt að fylgjast með hvernig umferðarþróunin verður næstu mánuði.

Umferðin með spá út árið

Umferðin með spá út árið

Umferðin eftir vikudögum

Umferðin eftir vikudögum