Umferðin í nóvember á höfuðborgarsvæðinu jókst um nærri fimm prósent sem leiddi til þess að met var slegið. Umferðin hefur aldrei verið meiri í nóvember en ekki er útlit samt fyrir að met verði slegið í ár en umferðin verður líklegast rétt undir því sem hún var árið 2019 þegar allt 2022 verður gert upp.
Milli mánaða
Umferðin í nýliðnum mánuð á höfuðborgarsvæðinu reyndist tæplega 5% meiri en í sama mánuði á síðasta ári, fyrir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á svæðinu. Þessi aukning varð til þess að nýtt umferðarmet var slegið í nóvemberumferð á höfuðborgarsvæðinu en umferðin reyndist rúmlega þremur prósentum meiri en gamla nóvembermetið frá 2019.
Umferðin jókst mjög svipað í öllum sniðum eða frá 4,7% upp í 5,0%, eða mest um mælisnið ofan við Ártúnsbrekku en minnst um mælisnið á Reykjanesbraut.
Umferð frá áramótum
Nú hefur umferðin aukist um tæp 2% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári.
Umferð eftir vikudögum
Hlutfallslega jókst umferð mest á laugardögum, eða um tæp 11%, en minnst á miðvikudögum, eða um rúmlega 2%.
Mest var ekið föstudögum en minnst á sunnudögum, í nýliðnum mánuði.
Horfur út árið
Nú þegar aðeins einn mánuður er eftir af árinu 2022 eru allar líkur til þess að umferðin verði í kringum 1,5% meiri en hún var á síðasta ári, á höfuðborgarsvæðinu. Gangi þessi spá eftir verður umferðin í ár samt sem áður rétt undir 2019 umferðinni.