10. október 2024
Mesta umferð í einum mánuði frá upphafi mælinga

Met var slegið í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu í september en aldrei áður hefur mælst jafnmikil umferð í einum mánuði. Að meðaltali fóru ríflega 190 þúsund ökutæki um mælisnið Vegagerðarinnar á hverjum sólarhring. Fyrra met var slegið í júní í fyrra. Umferðin var þó heldur minni en Vegagerðin spáði. Útlit er fyrir að umferðin í ár á höfuðborgarsvæðinu aukist um ríflega þrjú prósent.

Milli mánaða
Umferðin jókst um 1,7% milli september mánaða árin 2023 og 2024.  Mest jókst umferðin í mælisniði á Reykjanesbraut, eða um 2%, en minnst um mælisnið á Vesturlandsvegi eða um 1,4%.

Aldrei áður hefur umferð mælst meiri í nokkrum mánuði frá því að þessi samantekt hófst, árið 2005.  Í fyrsta sinn fór samanlögð meðalumferð á sólarhring yfir 190 þúsund ökutæki. Eldra met var frá því í júní 2023 en þá fóru rétt rúmlega 187 þúsund ökutæki á sólarhring um mælisniðin þrjú.

Frá áramótum
Nú hefur uppsöfnuð umferð aukist um  3,3%, frá áramótum, borið saman við sama tímabil á síðasta ári. Þessi aukning er talsvert undir þeirri stöðu, sem lá fyrir á sama tíma á síðasta ári, en þá var uppsöfnuð umferð 4,7%.

Umferð eftir vikudögum
Í nýliðnum mánuði var mest ekið á föstudögum en minnst á sunnudögum.  Þó minnst haf verið ekið á sunnudögum jókst umferðin, hlutfallslega mest á þeim vikudögum en minnst á mánudögum.

Horfur út árið 2024
Þar sem umferð jókst minna í september, en spár í síðasta mánuði gerðu ráð fyrir hafa horfur til aukningar út árið aðeins dregist saman.  Núna er gert ráð fyrir rétt rúmlega 3% aukningu á umferðinni nú í ár, borið saman við síðasta ár.