Lokanir á Rjúpnavegi á mánudaginn, 12. október
Fyrirhugað er að malbika nýtt hringtorg á mótum Arnarnesvegar og Rjúpnavegar á mánudaginn. Loka þarf Rjúpnavegi á milli Álmakórs/Kóravegar og Arnarnesvegar á meðan þeirri vinnu stendur. Fyrirhugað er að lokanir standi yfir frá kl. kl. 9:00-18:00.
Aka þarf um hjáleið á Vatnsendavegi og Arnarnesvegi á meðan lokun stendur. Hjáleiðar eru merktar og vegfarendur eru beðnir um að virða lokanir og sýna tillit.
Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar.