Hvers vegna blikka sumir vitar rauðu ljósi en aðrir hvítu? Hvers vegna blikka þeir með mismunandi takti og hversu langt nær ljós þeirra út á sjó? Þessum spurningum og mörgum fleiri er svarað á nýjum gagnvirkum vef sem Völundur Jónsson hefur útbúið í frístundum sínum. Þar má sjá íslenska vita blikka í réttum takti og lit, skoða ljósgeira þeirra og fræðast um þetta mikilvæga öryggiskerfi sjófarenda. Við gerð vefsins nýtti Völundur opinber gögn og aðstoð gervigreindar.

Skjámynd af vitakortinu en hægt er að þysja inn og skoða nánar landshluta eða einstaka vita.
Hugmyndin að vefnum á sér langan aðdraganda. Völundur, sem starfar hjá Dohop, hefur um árabil haft áhuga á vitum og ljósmerkjum þeirra. Frá vinnustaðnum sér hann nokkra vita og enn fleiri blasa við honum heiman frá sér.
„Vitarnir hafa verið að blikka á mig í mörg ár. Maður getur ekki horft á sömu ljósin kvöld eftir kvöld án þess að spyrja sig: Af hverju blikkar þessi tvisvar en hinn einu sinni? Af hverju er þessi rauður?“, segir Völdundur sem leitaði svara og fann þau öll í vitaskrá Landhelgisgæslunnar og Vegagerðarinnar. Þar eru upplýsingar um ljósmerki vitanna settar fram með alþjóðlegum táknum og skammstöfunum. „Fyrir sjómanni er það skýrt mál, en fyrir okkur hin álíka aðgengilegt og uppskrift á fornsænsku. Mig langaði að breyta töflunni í lifandi kort þar sem hver viti blikkar í sínum takti og lit, og maður sér hversu langt út á sjó ljósið nær.“
Völundur er jafnframt ljósmyndari og hefur lengi unnið með tölvur og gögn. Hann segir vitana því ekki síður áhugaverða út frá tæknilegu sjónarhorni. „Tölva skilur bara kveikt eða slökkt, einn eða núll, og viti gerir nákvæmlega það sama. Hvert blikk er einn biti í ljósi. Þetta er þráðlaust gagnanet sem var komið upp löngu fyrir internetið, og það virkar enn.“
Þótt vefurinn sé tæknilega flókinn tók það Völund aðeins um þrjá daga að koma honum á laggirnar. Hann nýtti sér gervigreindarverkfærin ChatGPT og Claude við forritunina og segist sjálfur varla hafa skrifað eina línu af kóða.
„Ég var verkstjórinn og þær smiðirnir, sem vinna allan sólarhringinn og kvarta aldrei. Ég sagði hvað ég vildi, bar útkomuna saman við vitaskrána og sagði oftar en ég kæri mig um að telja: „Nei, reyndu aftur.““
Grunnurinn að vefnum eru opinber gögn, meðal annars vitaskráin með upplýsingum um 354 vita og ljós auk dufla, hæðarlíkan af Íslandi og upplýsingar um strandlínuna. Fyrir hvern vita er reiknað hversu langt ljósið nær með tilliti til hæðar vitans, sveigju jarðar og fjalla sem geta skyggt á ljósið. Á bak við vefinn eru jafnframt yfir 200 sjálfvirk próf sem eiga að tryggja að upplýsingarnar birtist rétt.
Völundur segir verkefnið gott dæmi um þá möguleika sem gervigreind býður upp á.
„Það sem heillar mig mest er að góð hugmynd þarf ekki lengur heilt forritarateymi. Áður hefði svona kort kallað á landfræðing, forritara og vefhönnuð og marga mánuði af vinnu. Nú get ég legið í sófanum, lýst því sem ég vil á íslensku og fengið vinnandi lausn til baka.“
Ekki gekk þó allt alveg snurðulaust fyrir sig. Þegar Völundur hóf vinnuna gerði hann til dæmis ráð fyrir að flestir vitar snerust. „Í fyrstu útgáfunni snerust alltof margir vitar eins og diskókúlur. Svo kom vinsamleg ábending frá Vegagerðinni: Á Íslandi snúast aðeins fimm vitar, á Reykjanesi, Garðskaga, Skagatá, í Grímsey og á Dalatanga. Hinir blikka kyrrir. Diskóið var snarlega stöðvað,“ segir Völundur glettinn.
Vegagerðin hefur einnig bent Völundi á fleiri atriði sem hann hefur lagfært. Hann leggur áherslu á að þótt gervigreind geti skilað miklum árangri á skömmum tíma þurfi alltaf að yfirfara niðurstöðurnar vandlega.
„Gervigreindin er engin töfralausn. Hún getur verið sannfærandi og samt haft rangt fyrir sér, eins og diskóvitarnir sýndu.“
Á vefnum er jafnframt hægt að tilkynna rangfærslur og koma ábendingum á framfæri.
Þótt vefurinn sé byggður á tækni og gögnum er það ekki síður saga vitanna og mikilvægi þeirra fyrir íslenskt samfélag sem heillar Völund.
„Þetta er hreint áhugamál en það snertir líka eitthvað djúpt í okkur. Fram undir miðja síðustu öld var sjórinn þjóðvegurinn og vitarnir götuljósin,“ segir Völundur en hann þekkir mikilvægi vitanna af eigin raun. Hann átti áður báta, meðal annars trillu þegar hann bjó í Eyjafirði, og kynntist þá ljósmerkjum þeirra frá sjónarhóli sjófarenda.
„Í landi eru vitar fallegar byggingar. Á sjó eru þeir vinir sem segja manni hvar maður er og hvar maður á alls ekki að vera. Vitinn á Svalbarðseyri vísaði mér veginn með hvíta geiranum sínum, og græna ljósduflið á Hörgárgrunni úti af Gásum hafði bara eitt að segja: „Ekki hingað, vinur, hér er grunnt.“ Einfalt merki sem hefur örugglega bjargað mörgum.“
Við vinnslu vefsins segist Völundur hafa öðlast nýja sýn á hversu nákvæmt og fjölbreytt kerfi vitarnir mynda. Hver viti hefur sín sérstöku ljósmerki og sumir senda jafnvel skilaboð með morskóða. „Hver og einn sendir sitt eigið fingrafar, réttan lit í rétta átt og réttan takt upp á sekúndubrot, nótt eftir nótt í hvaða veðri sem er,“ segir Völundur.
En var eitthvað sem kom honum á óvart við vinnslu vefsins?
„Það sem kom mér mest á óvart sést fyrst þegar allir vitarnir eru komnir á sama kort: hvað óbyggðirnar eru dimmar.“
Vefurinn hefur vakið áhuga og Völundur segist hafa fengið fjölmörg ánægjuleg viðbrögð. Sumir hafi jafnvel setið tímunum saman við að skoða kortið og vitana á kunnuglegum slóðum.
Hann hefur þegar bætt Færeyjum og Grænlandi við kortið og útilokar ekki frekari þróun.
„Þetta er gleðiverkefni og ég held áfram á meðan það er gaman.“
Þegar hann er spurður hvort hann eigi sér uppáhaldsvita nefnir hann fyrst Engeyjarvita, sem hann sér frá svefnherbergisglugganum. „Engeyjarvitinn býður mér góða nótt. Hann er síðasta ljósið sem ég sé áður en ég sofna. Mjór hvítur geirinn í honum vísar skipunum beinu leiðina inn til Reykjavíkur. Ég hef líka miklar mætur á snúningsvitunum fimm, sem sópa geislanum yfir hafflötinn eins og vísar á risastórri klukku. Þeir eru einu vitarnir sem fengu að halda diskóinu,“ segir hann og brosir.
Hann nefnir fleiri vita á borð við Digranesvita sem tengist góðri minningu með fjölskyldu og vinum. „Skammt þaðan stendur Fontur á Langanesi, framvörður landsins efst á hamri yfir sjónum, sem þolir veður og brim allt árið eins og ekkert sé. Fallegastur er kannski Þormóðsskersviti úti af Mýrum, sem ég hef horft á frá Knarrarnesi með Jonna vini mínum. Einmana turn á skeri úti í hafi, eins og klipptur út úr Tinnabók.“
Að lokum tekur Völundur þó skýrt fram að vefurinn sé ætlaður til fróðleiks en ekki til notkunar við siglingar.
„Kortið er ekki ætlað til siglinga. Það er gluggi inn í heim vitanna, en sjómenn treysta áfram á sjókortin.“
Áhugasamir geta skoðað vitasíðuna hér
Þessi grein birtist fyrst í Framkvæmdafréttum 4.tbl nr. 741 árg. 2026.

ölundur við vitann á Sæbraut sem hann sér daglega út um gluggann í vinnunni en Völundur starfar hjá Dohop.

Vitarnir í kringum höfuðborgarsvæði og á Reykjanesskaga eru æði margir.

Með því að þysja inn á kortinu er hægt að skoða einstaka vita. Hér gefur að líta Dalatangavita og ýmsar áhugaverðar staðreyndir um hann, eins og gps-hnit, ljósdrægni og ljóshæð.