8. júlí 2024
Fram­kvæmd­ir á Gull­inbrú – nauð­synlegt að draga úr hraða

Viðhaldsaðgerðir fara nú fram á Gullinbrú. Framkvæmdirnar eru hluti af samningi Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar um skilaveg 419 sem ljúka á við á þessu ári, 2024. Verktakar sem vinna að þessum framkvæmdum eru Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar í samstarfi við Freyssnet.

Aðgerðir á Gullinbrú hófust 24. júní 2024 og áætlað er að þeim verði lokið 16. júlí 2024. Á meðan á aðgerðum stendur er nauðsynlegt að draga úr umferðarhraða og þrengja að umferð um eina akrein í báðar áttir framhjá framkvæmdasvæðinu. Ekki er gert ráð fyrir að loka þurfi fyrir umferð ökutækja né gangandi og hjólandi vegfarendur um brýrnar á framkvæmdatíma.

Helsta verkefnið í framkvæmdunum er að skipta út þennsluraufum beggja brúnna, en einnig er verið að fjarlægja klæðningu sem er ónýt og farin að skapa hættu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur undir brúnni.

Þá þarf að skipta um hluta af vegriði sem skemmdist í árekstri nýverið. Þetta eru frekar flóknar aðgerðir sem er helsta ástæða fyrir löngum framkvæmdatíma.

Gullinbrú

Gullinbrú

Gullinbrú göngustígur undir brúnna

Gullinbrú göngustígur undir brúnna