Uppbygging forgangsakreinar fyrir strætisvagna á Kringlumýrarbraut er í undirbúningi á um 400 metra kafla milli Háaleitisbrautar og Miklubrautar, vestan megin á götunni, með akstursstefnu í suður. Gert er ráð fyrir nýjum strætóstöðvum nálægt gatnamótunum við Háaleitisbraut. Einnig er ráðgert að í kjölfarið muni strætóleið 4 taka breytingum og aka beina leið eftir Kringlumýrarbraut. Ferðatími strætófarþega mun styttast um 4-5 mínútur án þess að hafa áhrif á ferðatíma annarra ökutækja. Vegagerðin hefur boðið verkið út og á því að ljúka í ágúst.
Horft til suðurs á Kringlumýrarbraut.
Markmiðið með uppbyggingu forgangsakreinar á Kringlumýrarbraut er að gera strætisvögnum kleift að komast leiðar sinnar á þessum kafla, óháð annarri umferð. Gert er ráð fyrir að breyting verði gerð á strætóleið 4 og hún muni aka þessa leið þegar forgangsreinin er tilbúin. Þannig mun ferðatími strætófarþega á þessari leið styttast um 4-5 mínútur.
Eins og staðan er núna fer strætó ekki þarna um því umferðin er of hæg á annatímum og engar strætóstöðvar eru á þessum slóðum. Í dag aka strætisvagnar upp Miklubraut, fram hjá Kringlu og svo vestur eftir Háaleitisbraut og beygja síðan norður Kringlumýrarbraut.
Áætluð umferð á Kringlumýrarbraut á þessu svæði er um 30.000 ökutæki/sólarhring samanlagt í norður- og suðurátt.
Í verkinu felst að byggja upp nýja 400 m akrein fyrir bíla, breyta núverandi akrein fyrir bíla í strætórein, auk þess að minnka og endurgera miðeyjuna til að skapa pláss fyrir nýja akrein. Girðing á miðeyjunni verður fjarlægð og í staðinn sett upp vegrið. Akreinarnar á þessum kafla verða fræstar og malbikaðar upp á nýtt. Einnig þarf að taka niður og færa til ljósastaura.
Verkið var boðið út 21. mars síðastliðinn og tilboð opnuð 8. apríl. Áætlað er að framkvæmdir geti hafist í maí og þeim á að ljúka fyrir 15. ágúst. Ráðgert er að ganga til samninga við verktaka á næstu dögum. Reykjavíkurborg hefur þegar gefið út framkvæmdaleyfi.
Lagt er upp með að framkvæmdir standi yfir sumartímann eða áður en umferð eykst aftur eftir sumarfrí. Umræddar framkvæmdir eru 1. áfanginn í að byggja forgangsrein fyrir strætó á Kringlumýrarbraut. Í framhaldinu verður til skoðunar að leggja forgangsrein á lengri kafla sem og í hina akstursstefnuna á Kringlumýrarbraut en það verður þó ekki gert á þessu ári.
Búast má við umferðartöfum meðan á framkvæmdum stendur. Loka þarf einni akrein í suðurátt stóran hluta af framkvæmdatíma og á meðan verður aðeins ein akrein í suðurátt opin. Einnig þarf að loka einni akrein í norðurátt meðan unnið er við að minnka miðeyjuna. Vonast er til að vegfarendur sýni þessu skilning og þolinmæði.
Vegagerðin, Betri samgöngur, Reykjavíkurborg og Strætó vinna saman að þessu verkefni.
Miðeyjan verður endurgerð til að skapa pláss fyrir nýja akrein.