Vegir til og frá höfuðborgarsvæðinu gætu lokast í dag vegna veðurs. Spáð er miklum skafrenningi með ofankomu á suðvesturhluta landsins eftir hádegi og eru miklar líkur á að það geti valdið samgöngutruflunum. Fjölmargir vegir eru á óvissustigi og gætu lokast með stuttum fyrirvara.
Vegfarendur eru beðnir um að bíða með ferðalög á meðan veðrið gengur yfir og fara ekki af stað nema brýna nauðsyn beri til. Minnum á upplýsingar um færð og veður á umferdin.is og vedur.is.
Hellisheiði, Þrengslin, Krýsuvíkurvegur og Suðurstrandavegur eru lokaðir vegna veðurs.
Á Reykjanesbraut, Grindavíkurvegi og Mosfellsheiði geta aðstæður orðið krefjandi vegna hvassviðris, éljagangs og skafrennings.