15. nóvember 2024
Borgar­lína, skipu­lag og umhverf­ismat fyrstu lotu til kynn­ingar

Reykjavíkurborg og Kópavogur hafa samþykkt að kynna tillögur að rammahluta aðalskipulags fyrir fyrstu lotu Borgarlínunnar. Fyrsta lotan er á milli Ártúnshöfða í Reykjavík og Hamraborgar í Kópavogi. Vegagerðin hefur jafnframt lagt fram til kynningar umhverfismatsskýrslu vegna framkvæmda við fyrstu lotu Borgarlínu.

 

Skipulagsgögnin fjalla meðal annars um legu Borgarlínunnar, staðsetningu stöðva og umhverfisáhrif framkvæmda og reksturs Borgarlínunnar. Jafnframt eru sett fram almenn viðmið um hönnun göturýma og forgang virkra ferðamáta og almenningssamgangna.

Með Borgarlínunni verður til nýtt almenningssamgöngukerfi sem bindur sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu betur saman, með betri lífsgæðum og einfaldara lífi fyrir íbúa. Með henni er verið að styrkja innviði og taka nauðsynleg skref í loftslagsmálum og í átt að betri lýðheilsu.

Kynningarfundir á nýju ári

Skipulagsgögnin og umhverfismatsskýrsla eru aðgengileg í Skipulagsgáttinni. Frestur til athugasemda er til 25. janúar 2025

Kynningarfundir verða haldnir á nýju ári; í Reykjavík fimmtudaginn 9. janúar og í Kópavogi miðvikudaginn 15. janúar. Fundirnir verða nánar auglýstir síðar.

Sjá nánar hér:

Ásýndarmynd. Drög að hönnun á Borgarholtsbraut.

Ásýndarmynd. Drög að hönnun á Borgarholtsbraut.

Ásýndarmynd. Drög að hönnun á Laugavegi við Hátún.

Ásýndarmynd. Drög að hönnun á Laugavegi við Hátún.

Kort af Borgarlínu, lotu 1.

Kort af Borgarlínu, lotu 1.

 Ásýndarmynd af skýli við borgarlínustöð.

Ásýndarmynd af skýli við borgarlínustöð.