16. september 2026
Baldur fer í slipp í októ­ber

Ferjan Baldur fer í slipp í Hafnarfirði 6. október næstkomandi og er áætlað að viðhald taki fjórar til sex vikur. Síðasta áætlunarferð Baldurs yfir Breiðafjörð áður en skipið fer í slipp verður mánudaginn 5. október.

Ferjan Baldur. Mynd: Ferjuleiðir

Ferjan Baldur. Mynd: Ferjuleiðir

Á meðan Baldur er í slipp verður farþegabáturinn Ingólfur frá Ísafirði notaður til siglinga til og frá Flatey. Áætlað er að sigla á þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum. Nánari upplýsingar um brottfarartíma verða birtar þegar nær dregur.

Þar sem Ingólfur getur ekki sinnt vöruflutningum með sama hætti og Baldur eru þeir sem þurfa að flytja þunga muni eða vörur til og frá Flatey hvattir til að gera það áður en Baldur fer í slipp.

Gert er ráð fyrir að Baldur verði frá áætlunarsiglingum í fjórar til sex vikur.